Quantcast
Channel: Viðburðir við HÍ - Events at the University of Iceland
Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012

Meistarafyrirlestur: Ógegndræp yfirborð í Reykjavík: greining á vatnasviðum borgarinnar

$
0
0
Hvenær hefst þessi viðburður: 
20. október 2014 - 15:00
Staðsetning viðburðar: 
Nánari staðsetning: 
Stofa 130
Háskóli Íslands

Ursula Zuehlke flytur fyrirlestur um verkefni sitt til meistaraprófs í umhverfis- og auðlindafræði. Verkefnið ber heitið Ógegndræp yfirborð í Reykjavík: greining á vatnasviðum borgarinnar.

Ágrip

Þegar yfirborð jarðar er þakið vatnsheldum efnum, oft í tengslum við borgar- og þéttbýlismyndun, dregur úr gegndræpi jarðvegs. Þetta getur m.a. leitt til breytts vatnsbúskapar, aukins álags á fráveitukerfi og aukinnar hættu á flóðum í miklum vatnsveðrum. Í verkefninu var þekja ógegndræps yfirborðs í Reykjavík greind eftir hverfum og sett í samhengi við íbúa- og starfsþéttleika og samgöngur. Tengslin milli hlutfalls af ógegndræpu yfirborði á vatnasviðum og vatnsgæða og rennslis voru rannsökuð. Notuð voru m.a. fyrirliggjandi kort sem sýna útbreiðslu ógegndræps yfirborðs í Reykjavík og landfræðilegt upplýsingakerfi til útreikninga. Í seinni hluta verkefnisins voru mótaðar tillögur að aðgerðum sem stuðla að meiri gegndræpni jarðvegs á íbúa eða starf.
Niðurstöður sýna að ógegndræp yfirborð á mann eykst í öfugu hlutfalli við þéttleika íbúa og starfa. Stærsti hluti ógegndræps yfirborðs þjónar vélknúnum samgöngum.
Fylgni er milli hlutfalls þétts yfirborðs á afrennslissvæðum og rennslis af völdum rigningar í dælustöðvum annars vegar, og vatnsmengunar (leiðni og heildarstyrk málma) hins vegar.
Niðurstöður benda til þess, að þétting byggðar geti verið ákjósanleg leið til að minnka ógegndræpt yfirborð á hvern íbúa og, að írennsli ofanvatns í jarðgrunn geti verið fýsileg leið í mörgum tilvikum til að draga úr áhrifum ógegndræps yfirborðs á umhverfið.
 
Leiðbeinendur:Guðrún Gísladóttir og Þorbjörg Kjartansdóttir
Prófdómari: Hrafnhildur Brynjólfsdóttir
 
 

Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012