Hvenær hefst þessi viðburður:
24. júní 2013 - 16:30 to 18:00
Staðsetning viðburðar:
Nánari staðsetning:
Bratti

Brautskráning kandídata sem eru að ljúka námi í kennslufræði fyrir iðnmeistara - grunndiplóma frá Kennaradeild við Menntavísindasvið Háskóla Íslands fer fram í Bratta, mánudaginn 24. júní nk. kl. 16.30.
Athöfnin hefst með tónlistaratriði sem hljómsveitin Brother Grass leikur. Sigríður Pétursdóttir, deildarstjóri Kennaradeildar stýrir brautskráningu kandídata og að henni lokinn ávarpa Ingólfur Ásgeir Jóhannesson prófessor, tveir nemendur og Jón Torfi Jónasson forseti Menntavísindasviðs kandídata. Athöfninni lýkur með samsöng undir stjórn hljómsveitarinnar. Dagskrá verður afhent við innganginn.