Hvenær hefst þessi viðburður:
18. september 2014 - 14:00
Staðsetning viðburðar:
Nánari staðsetning:
Stofa 129

Andri Stefánsson flytur fyrirlestur um verkefni sitt til meistaraprófs í fjármálaverkfræði. Verkefnið ber heitið Verðmætasköpun úr affalli og útblæstri jarðvarmavirkjana.
Umfjöllunarefni þessarar ritgerðar er verðmætasköpun úr affalli og útblæstri íslenskra jarðvarmavirkjana. Í stað þess að líta á affallsvatn og útblástur sem mengun og kostnað má nýta það til ýmissar framleiðslu eða ræktunar. Bætt nýting jarðhitaauðlindarinnar stuðlar jafnframt að aukinni samkeppnishæfni og sjálfbærni hennar auk þess að skapa verðmæti og störf.
Í ritgerðinni er heildarumfang losunar á affallsvatni (skiljuvatni, þéttivatni og kælivatni) og útblæstri óþéttanlegra lofttegunda skoðað eftir virkjunum, en frá þeim sex jarðvarmavirkjum sem starfræktar voru á árinu 2011 losuðust 206 milljón tonn af affallsvatni og 212 þúsund tonn af útblæstri. Einnig er gerð grein fyrir þekktum og minna þekktum aðferðum við nýtingu affallsvatns og útblásturs auk þess sem aðstæður til nýtingar affallstraumanna eru skoðaðar. Sveitarfélög hafa síðustu ár tekið frá lóðir í nágrenni jarðvarmavirkjana fyrir orkutengdan iðnað, þ.m.t. iðnað sem nýtir affallsvatn og útblástur virkjana. Alls hafa sveitarfélög tekið frá yfir 1.000 ha fyrir orkutengdan iðnað til viðbótar við iðnaðarsvæði sem sérstaklega eru skilgreind sem orkuvinnslusvæði í aðalskipulögum.
Leiðbeinendur:
Ragnheiður Inga Þórarinsdóttir
Rúnar Unnþórsson
Prófdómari
Eggert Þröstur Þórarinsson