Hvenær hefst þessi viðburður:
20. ágúst 2014 - 14:00
Staðsetning viðburðar:
Nánari staðsetning:
Stofa 104

Kynningarfundur Lyfjafræðideildar verður haldinn miðvikudaginn 20. ágúst klukkan 14.00, í stofu 104 á fyrstu hæði í Haga, húsi Lyfjafræðideildar, á Hofsvallagötu 53.
Á fundinum munu Már Másson, forseti Lyfjafræðideildar og Hákon Hrafn Sigurðsson, formaður námsnefndar, taka á móti nýjum stúdentum og kynna deildina og nám í lyfjafræði.
Fulltrúar frá Tinktúru, félagi lyfjafræðinema, munu kynna starfsemi sína og bjóða upp á skoðunarferð um Haga, þar sem rannsókna- og kennslustofur deildarinnar eru staðsettar.
Mikilvægt er að nýnemar mæti á fundinn.