Quantcast
Channel: Viðburðir við HÍ - Events at the University of Iceland
Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012

Meistarafyrirlestur: Sundrun landslagsheilda á Íslandi

$
0
0
Hvenær hefst þessi viðburður: 
3. júní 2014 - 16:00
Staðsetning viðburðar: 
Nánari staðsetning: 
Stofa 131
Háskóli Íslands

Einar Hjörleifsson flytur fyrirlestur um verkefni sitt til meistaraprófs í landfræði. Verkefnið ber heitið Sundrun landslagsheilda á Íslandi.

Ágrip

Sundrun landslagsheilda er það þegar stórum landslagssvæðum er skipt upp í minni og einangraðari svæði (EEA & FOEN, 2011). Helstu áhrifaþættir eru mannlegir þættir eins borgvæðing sem og línulegir þættir eins og lestarteinar og vegir. Sundrun landslags hefur margvísleg áhrif á búsvæða lífvera, þar sem þau bæði skerðast en einnig breytast að innri gerð. Umhverfisstofnun Evrópu og Umhverfisstofnun Sviss reiknuðu megindlega hver sundrun landslagsheilda væri innan 28 landa í Evrópu (EEA & FOEN, 2011) og var Ísland ekki haft með í þeim útreikningi. Markmið þessarar ritgerðar er að skapa samanburðarhæfar niðurstöður við Evrópsku rannsóknina en jafnframt að skapa heilstæð grunnlínugögn sem gætu nýst innanlands t.d. sem umhverfisþáttur í umhverfismati áætlana eða sem sambærilegur þáttur í umhverfisvöktun skipulagsyfirvalda tengdu nýju landsskipulagi. Mæld sundrun var reiknuð með hjálp landfræðilegra upplýsingakerfa, þar sem sex frábrugðnar formgerðir sundrunar voru metnar með tilliti til fimm samanburðaeininga. Niðurstöðurnar benda til minni sundrunar en víðast hvar í Evrópu. Þó bendir ýmislegt til þess að ástæða sé til þess að vakta áframhaldandi þróun. Áhrifum sundrunar hefur verið lýst sem stigmagnandi vandamáli í Evrópu, þar sem brugðist var við of seint og nú er unnið að því að auka tengingu svæða með dýrum mótvægisaðgerðum. Þar er vandmálið að stórum hluta tengt landspendýrum. Hér á landi hafa áhrif sundrunar búsvæða á tegundahópa ekki verið könnuð. Með því að vakta sundrun landslags við gætum við gætt að því; að á meðan við byggjum upp innviði samfélagsins röskum við ekki samheldni landslagsheilda með sama hætti og á meginlandi Evrópu.

Leiðbeinendur: Ingibjörg Jónsdóttir og Guðmundur Freyr Úlfarsson
Prófdómari: Hjalti J. Guðmundsson


Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012