
Háskólalest Háskóla Íslands er nú að leggja af stað í sína árlegu ferð og er þetta fjórða vorið sem lestin brunar um landið með fjölbreytta dagskrá fyrir alla aldurshópa. Fyrsti áfangastaðurinn er að þessu sinni Laugarvatn. Í ferðum lestarinnar er lögð áhersla á lifandi, skemmtilega vísindamiðlun til ungs fólks og litríka dagskrá fyrir alla fjölskylduna.
Fimmtudaginn 8. maí sækja nemendur eldri deilda Bláskógaskóla námskeið í Háskóla unga fólksins í efnafræði, íþróttanæringarfræði, blaða- og fréttamennsku, jarðvísindum, stjörnufræði og japönsku.
Laugardaginn 10. maí verður svo slegið upp veglegri vísindaveislu í Íþróttahúsinu á Laugarvatni kl 13 til 17. Þar verða meðal annars magnaðar sýnitilraunir, japanskir búningar og skrautskrift, leikir og þrautir, ýmis tæki og tól, furðuspeglar, mælingar og alls kyns óvæntar uppgötvanir. Sérfræðingar frá Landgræðslu Íslands bjóða gestum í skoðunarferð þar sem jarðsagan verður lesin úr rofabörðum í nágrenninu og heilmargt annað verður í boði fyrir heimamenn.
Sprengjugengið landsfræga er með í för og sýnir kl. 13.30 og 15.30 og sýningar verða í hinu sívinsæla stjörnutjaldi á 30 mínútna fresti. Stjörnutjaldið verður staðsett í anddyri Íþróttafræðasetursins en Sprengjugengið sýnir í Íþróttahúsinu.
Dagskrá Háskólalestarinnar er öllum opin, aðgangur ókeypis og allir hjartanlega velkomnir.