Quantcast
Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012

Efnismenning geimsins Fatnaður og samfélag um borð í stjarnflaugum framtíðarinnar

Hvenær hefst þessi viðburður: 
12. maí 2014 - 12:05
Nánari staðsetning: 
Fyrirlestrarsalur Þjóðminjasafnsins
Image may be NSFW.
Clik here to view.
Picture: courtesy of NASA

 

Efnismenning geimsins
 
Fatnaður og samfélag um borð í stjarnflaugum framtíðarinnar
 
Karl Aspelund gestalektor í þjóðfræði við Háskóla Íslands og lektor í hönnun við Rhode Island University
 
Innsetningarfyrirlestur í stöðu gestalektors við námsbraut í þjóðfræði og safnafræði við Félags- og mannvísindadeild Háskóla Íslands
 

Mánudaginn 12. maí kl. 12:05 í fyrirlestrarsal Þjóðminjasafnsins

Ágrip

Stefnt er að því að senda mannaðar stjarnflaugar út fyrir sólkerfið innan eitt hundrað ára. Á næstu áratugum verða jafnframt til varanleg samfélög manna í geimstöðvum og á öðrum hnöttum. Rétt eins og á jörðinni verður klæðnaður í geimnum einn þráður í flóknum vef efnismenningar í þessum samfélögum. Sá þráður liggur hins vegar víða.

Nú er nýhafin rannsókn á því hvers konar klæðnað langdvöl í geimnum útheimtir. Aðstæður í geimnum og fjarlægðin frá jörðu kallar á algera sjálfbærni í allri framleiðslu og notkun fatnaðar. Því ber nauðsyn til að leita býsna róttækra lausna. Þær lausnir snúast meðal annars um gerð textílefna og efnafræði, fatagerð og hönnun, en þær krefjast þess líka að gefinn sé góður gaumur að menningunni í kringum föt. Samfélag stjarnflaugarinnar mun fljótlega slitna úr tengslum við menningu jarðarinnar og verður þess vegna að vera sjálfu sér nægt. Það mun mynda sína eigin heild með tilheyrandi sérkennum. Þá fer að skipta máli hvernig klæðnaður mótar einstaklinga og samfélög og hvernig skapandi hugsun tengir manneskjurnar saman og við umhverfi sitt.

 

Einhverjar kerfisbreytingar virðast óumflýjanlegar á félagsgerð og efnismenningu mannlegs samfélags í geimnum. Þrátt fyrir að stjarnflaugin marki að vissu leyti hámark módernískrar hugmyndafræði setja náttúra geimsins og stærð farsins samfélaginu um borð slíkar skorður að líklega verður að byggja það á eldri þjóðfélagsmynstrum. Þessi þversögn er þó tálsýn og hún leysist upp hugsi maður stjarnflaugina sem umgjörð utan um nýtt stig iðnvædds samfélags, þar sem það hefur náð jafnvægi í sátt við umhverfi sitt. Grundvöllur farsæls geimsamfélags er nefnilega nákvæmlega sá sami og grundvöllur farsæls samfélags á jörðinni; rannsóknir sem undirbúa sjálfbært líf og menningu um borð í stjarnflaug geta haft veruleg áhrif til batnaðar á jörðinni löngu áður en flaugin sjálf verður ferðbúin.

Picture: courtesy of NASA


Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012