Quantcast
Channel: Viðburðir við HÍ - Events at the University of Iceland
Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012

Einar Lövdahl með tónleika í Háskólatorgi

$
0
0
Hvenær hefst þessi viðburður: 
3. september 2013 - 12:00 to 12:30
Staðsetning viðburðar: 
Nánari staðsetning: 
Sviðið
Einar Lövdahl
Í tilefni af Nýnemadögum verður Einar Lövdahl með tónleika í Háskólatorgi.
 
Einar Lövdahl, sem er ritstjóri Stúdentablaðsins er ekki eingöngu lunkinn með pennann því hann er einnig tónlistarmaður og gaf nýverið út sína fyrstu plötu, Tímar án ráða.
 
Tónlist Einars hefur verið skilgreind af ýmsum sem létt indípopp með alþýðutónlistarkeim, vegna skýrra íslenskra texta. 
 
Einar stígur á stokk í Háskólatorgi með einvalaliði hljóðfæraleikara úr tónklíku sem ber nafnið Hjörðin. Í Hjörðinni er að finna tónlistarmenn úr öðrum hljómsveitum á borð við Sykur, Porquesí og Tuttugu.
 
Allir velkomnir.

Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012