Quantcast
Channel: Viðburðir við HÍ - Events at the University of Iceland
Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012

Meistarafyrirlestur: Greining á samrýmanleika landnotkunar frístundabyggða við stefnumörkun stjórnvalda er varðar náttúruminjar

$
0
0
Hvenær hefst þessi viðburður: 
11. apríl 2014 - 14:00
Staðsetning viðburðar: 
Nánari staðsetning: 
Stofa 131
Kristín Salóme Jónsdóttir

Kristín Salóme Jónsdóttir flytur fyrirlestur um verkefni sitt til meistaraprófs í umhverfis- og auðlindafræði. Verkefnið ber heitið Greining á samrýmanleika landnotkunar frístundabyggða við stefnumörkun stjórnvalda er varðar náttúruminjar.

Ágrip

Markmið þessarar ritgerðar er að greina samrýmanleika landnotkunar frístundabyggða í sveitarfélögum á Suðurlandi, við stefnumörkun stjórnvalda er varðar náttúruminjar. Tilgangur greiningarinnar er að fá svar við þeirri spurningu hvort landnotkun frístundabyggða í ofangreindum sveitarfélögum samrýmist þeim lögum og reglugerðum er varða málaflokkinn og þeirri stefnumótun er sett hefur verið fram af íslenskum stjórnvöldum. Á Íslandi eru skv. nýjustu upplýsingum frá Þjóðskrá Íslands (2013) vel yfir 12 þúsund frístundahús, nánar tiltekið 12607. Í ritgerðinni er gefið yfirlit um þróun frístundabyggða og fjölda þeirra. Jafnframt er farið yfir og gerð greining á þeim lögum og reglugerðum og annarri stefnumörkun stjórnvalda, er varðar landnotkun frístundabyggða. Áætlanir um frístundabyggðir í samþykktum aðalskipulögum sveitarfélaga á Suðurlandi eru skoðaðar og greindar hvað varðar landnotkun. Í ritgerðinni eru síðan fimm mismunandi frístundabyggðasvæði í þremur sveitarfélögum, greind nánar. Valin voru frístundabyggðasvæði sem voru deiliskipulögð og samþykkt eftir að lög nr. 44/1999 um náttúruvernd tóku gildi. Í 37. gr. þeirra kemur fyrst fram að vissar jarðmyndanir og vistgerðir njóti sérstakar verndar og að forðast skuli röskun þeirra eins og kostur er. Landnotkun ofangreindra fimm frístundabyggða var borin saman við gróðurkort og staðirnir heimsóttir. Næst var farið yfir niðurstöðurnar og svar fengið við megin rannsóknarspurningunni þ.e. er samrýmanleiki milli landnotkunar frístundabyggða og stefnumörkunar stjórnvalda er varðar náttúruminjar. Markverðustu niðurstöður greiningarinnar eru þær að eftir árið 1999 hafa verið samþykktar frístundabyggðir á svæðum sem ættu skv. lögum, reglugerðum og stefnumótun stjórnvalda að njóta sérstakrar verndar og þeim hefði þar af leiðandi átt að hlífa við framkvæmdum og öðru raski.

Leiðbeinendur: Trausti Valsson og Aðalheiður Jóhannsdóttir.
Prófdómari: Hjalti J Guðmundsson.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012