Hvenær hefst þessi viðburður:
2. apríl 2014 - 18:30 til 19:30
Staðsetning viðburðar:
Nánari staðsetning:
HT-105

Victor B. Dover, arkitekt og annar höfunda bókarinnar Street Design: The Secret to Great Cities and Towns, er aðalfyrirlesari Grænna daga í ár. Victor var formaður CNU-samtakanna á árunum 2010-2012, samtaka sem vinna að sjálfbærari byggðum. Í dag er hann meðeigandi í fyrirtækinu Dover, Kohl & co. sem vinnur að borgarskipulagsmálum. Victor hefur haldið fjölda fyrirlestra um viðfangsefni tengd lífvænni samfélögum og sjálfbærri þróun. Þessi viðburður er skipulagður í samstarfi við sendiráð Bandaríkjanna á Íslandi.
Fyrirlesari: Victor B. Dover
Titill: Sustainable Urbanism Begins with Street Design
Fundarstjóri: Kristín Vala Ragnarsdóttir
Þessi viðburður er skipulagður af Gaia- félagi meistaranema í umhverfis- og auðlindafræðum, í samstarfi við sendiráð Bandaríkjanna í Reykjavík.
Viðburðir Grænna daga fara fram á ensku.
Þeir eru öllum opnir og frítt er inn.
Hér má finna heildardagskrá Grænna daga 2014.