
Rannsóknarstofa í þroskaþjálfafræðum stendur fyrir hádegisfyrirlestri þar sem Guðrún V. Stefánsdóttir dósent í fötlunarfræði við Menntavísindasvið fjallar um nýja rannsókn á sjálfræði í lífi fólks með þroskahömlun. Í fyrirlestrinum verður sjónum beint að þeim hópi sem þarf mikla aðstoð og stuðning í daglegu lífi. Þau hafa sem hópur verið kölluð fólk með miklar stuðningsþarfir, fólk með fjölþættar skerðingar, mikið fötluð, ofurfötluð og fjölfötluð. Varpað verður fram spurningum eins og: Hver eru þau? Hvaða hugtök má nota um þau? og Hvernig birtist sjálfræði í lífi þeirra? Niðurstöður rannsóknarinnar sýna m.a. hvernig viðhorf og vinnubrögð starfsfólks, aðstoð og þjónusta, skipulag og stefnumótun getur ýmist stuðlað að eða ógnað sjálfræði fólks með þroskahömlun.
Kaffi á könnunni.
Stefnt að því að taka upp erindið fyrir áhugasama á landsbyggðinni.
Öll velkomin.