Quantcast
Channel: Viðburðir við HÍ - Events at the University of Iceland
Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012

Er hægt að ná fram réttlæti í kynferðisbrotamálum á grundvelli skaðabótaréttar?

$
0
0
Hvenær hefst þessi viðburður: 
28. mars 2014 - 14:00 til 16:00
Staðsetning viðburðar: 
Nánari staðsetning: 
stofa 132
Háskóli Íslands

Föstudaginn 28. mars efnir RIKK – Rannsóknastofnun í jafnréttisfræðum við Háskóla Íslands til málþings í samstarfi við Lagastofnun Háskóla Íslands um möguleika til að ná fram réttlæti í kynferðisbrotamálum á grunvelli skaðabótaréttar. Málþingið fer fram kl. 14.00–16.00 í Öskju, stofu 132.

Á undanförnum misserum og árum hefur umfjöllun um kynferðisbrot og meðferð þeirra innan réttarkerfisins verið áberandi. Réttarkerfið hefur mætt harðri gagnrýni fyrir það hve fáum kynferðisbrotamálum er vísað áfram innan réttarvörslukerfisins. Á sama tíma hefur verið bent á að sönnunarstaða í kynferðisbrotamálum sé erfið þar sem sönnunargögnum er sjaldan til að dreifa. Minna hefur þó verið fjallað um möguleika skaðabótarréttarins í málaflokknum. Á málþinginu verður meðal annars leitað svara við eftirfarandi spurningum: Er réttur brotaþola kynferðisbrota til skaðabóta sóttur að fullu? Er ástæða til að nýta skaðabótarétt í auknum mæli í kynferðisbrotamálum, óháð refsirétti?  Er hægt að styðja betur við þolendur kynferðisbrota við að leita réttar síns á grundvelli skaðabótalaga og hvernig virka gjafsóknarreglur í því sambandi? Að loknum erindum taka við pallborðsumræður.
 
Dagskrá:
 
Fundarstjórn: Sólveig Anna Bóasdóttir, dósent við Guðfræði- og trúarbragðafræðideild og stjórnarformaður RIKK
 
Eiríkur Jónsson, dósent við lagadeild HÍ
Skaðabætur vegna kynferðisbrota – er réttur brotaþola ekki að fullu sóttur?
 
Hildur Fjóla Antonsdóttir, kynjafræðingur og rannsakandi hjá EDDU – öndvegissetri við HÍ
„...[það mun] alltaf halla á brotaþola sé þetta sakamál“. Er ástæða til að nýta skaðabótaréttinn í auknum mæli í kynferðisbrotamálum?
 
Atli Gíslason, hrl., hjá LAG - Lögmenn
Hæstaréttardómur nr. 49/2005: Einkamál í þágu almannahagsmuna?
 
Margrét Gunnlaugsdóttir, hrl., hjá Acta lögmannastofu
Miskabætur, réttarstaða brotaþola
 
Pallborðsumræður


Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012