Quantcast
Channel: Viðburðir við HÍ - Events at the University of Iceland
Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012

Opnunarathöfn Grænna daga í Háskóla Íslands

$
0
0
Hvenær hefst þessi viðburður: 
1. apríl 2014 - 12:00 til 13:00
Staðsetning viðburðar: 
Háskóli Íslands

Grænir dagar í Háskóla Íslands verða haldnir dagana 1. – 5. apríl og þema daganna í ár er sjálfbærni í borgum. Grænir dagar eru þemadagar haldnir hvert ár í Háskóla Íslands en skipulagðir af Gaia, nemendafélagi mastersnema í umhverfis- og auðlindafræði. Dagskráin hefst með opnunarathöfn á Háskólatorgi með ræðum og veitingu umhverfisverðlauna Grænna daga sem veitt eru einstaklingi, deild eða sviði innan Háskóla Íslands sem hefur stuðlað að aukinni umhverfisvitund og umræðu um umhverfismál. Úrslit í ljósmyndasamkeppni umhverfis-og sjálfbærninefndar Háskóla Íslands verða einnig tilkynnt. 


Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012