Quantcast
Channel: Viðburðir við HÍ - Events at the University of Iceland
Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012

Konfúsíusarstofnunin kynnir fyrirlestur Alyson Bailes: "Torg hins himneska friðar - séð frá breska sendiráðinu"

$
0
0
Hvenær hefst þessi viðburður: 
17. mars 2014 - 12:00 til 13:00
Staðsetning viðburðar: 
Nánari staðsetning: 
104
Alyson Bailes

Konfúsíusarstofnunin Norðurljós kynnir fyrirlestur Alyson Bailes

Torg hins himneska friðar – séð frá breska sendiráðinu

Mánudaginn 17. mars kl. 12:00

Háskólatorgi 104

Alyson Bailes lýsir atburðunum á Torgi hins himneska friðar í Peking sumarið 1989 þegar hún var starfsmaður breska sendiráðsins í Peking. Ýmislegt benti til þess að ólgan sem hafði myndast í samfélginu og birst í formi mótmæla á torginu myndi hjaðna. Það kom því mörgum á óvart þegar skyndilega var gripið til hernaðaraðgerða og stríðsástand skall á um alla borg. Alyson rekur í erindi sínu hvernig samfélagsólgan skapaðist, hverjir áttu í hlut, segir af því þegar átökin brutust út og ástand mála þegar öldurnar lægði.

Alyson Bailes er aðjúnkt við stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands og sérsvið hennar er þjóðaröryggi og varnarmálastefnur á okkar tímum. Á árunum 1987-1989 var hún staðgengill sendiherra, aðalræðismaður og meðlimur kínversk-breska samstarfshópsins um framtíð Hong Kong í breska sendiráðinu í Peking.

Fyrirlesturinn verður á ensku.

Allir velkomnir.

 


Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012