Quantcast
Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012

Vorráðstefna Viðskiptafræðistofnunar

Hvenær hefst þessi viðburður: 
14. mars 2014 - 11:00 til 16:00
Staðsetning viðburðar: 
Nánari staðsetning: 
Lögberg 103 og Gimli 102
Image may be NSFW.
Clik here to view.
Háskóli Íslands
Viðskiptafræðistofnun Háskóla Íslands stendur fyrir Vorráðstefnu um rannsóknir í viðskiptafræði föstudaginn 14. mars næstkomandi. Ráðstefnan hefst klukkan 11:00 og stendur til 16:00 í Lögbergi 103 og Gimli 102, Háskóla Íslands.
Vorráðstefnan er vettvangur fyrir fræðimenn sem stunda rannsóknir á sviði viðskipta til að kynna rannsóknarviðfangsefni sín og niðurstöður fyrir öðrum fræðimönnum á sviðinu.
Greinar sem kynntar verða á ráðstefnunni verða birtar í rafrænu ráðstefnuriti sem gefið verður út af Viðskiptafræðistofnun Háskóla Íslands og verður opið og aðgengilegt á vef stofnunarinnar.
Allir velkomnir og aðgangur ókeypis

Dagskrá: Vorráðstefna Viðskiptafræðistofnunar

 


Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012