Quantcast
Channel: Viðburðir við HÍ - Events at the University of Iceland
Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012

Námskynning í Verkmenntaskólanum á Akureyri

$
0
0
Hvenær hefst þessi viðburður: 
12. mars 2014 - 11:00 til 13:30
Háskóli Íslands

Háskólar landsins verða á ferðinni um landið vikuna 10.-14. mars og kynna nám sitt og starfsemi fyrir verðandi háskólanemum á fjórum stöðum á landsbyggðinni. Auk þess kynnir Háskóli Íslands námsframboð sitt á fimmta staðnum. Kynningin er liður í samstarfi skólanna um Háskóladaginn.

Fulltrúar Háskóla Íslands svara spurningum áhugasamra um námsframboð, starfsemi skólans og þjónustu. Alls eru um 400 námsleiðir í boði við Háskóla Íslands.

Þriðja kynningin verður í Verkmenntaskólanum á  Akureyri miðvikudaginn 12. mars kl. 11:00-13:30.

Í framhaldinu fer fram námskynning á eftirtöldum stöðum:
Selfoss: Kynning í Fjölbrautaskóla Suðurlands á Selfossi - 13. mars kl. 12-14.
Ísafjörður: Kynning í Menntaskólanum á Ísafirði - 14. mars kl. 11-13.

Námskynningarnar eru opnar öllum áhugasömum.
 


Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012