Quantcast
Channel: Viðburðir við HÍ - Events at the University of Iceland
Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012

Opnun vefgáttar um sjálfbærni- og umhvefismál í HÍ

$
0
0
Hvenær hefst þessi viðburður: 
4. mars 2014 - 15:00
Staðsetning viðburðar: 
Nánari staðsetning: 
Litla tog
Háskóli Íslands

Þriðjudaginn 4. mars mun rektor Háskóla Íslands, Kristín Ingólfsdóttir, opna nýjan vef um sjálfbærni- og umhverfismál innan Háskóla Íslands. Opnunin fer fram á „Litla torgi“ (nýbyggingin við Háskólatorg) kl. 15. Þá mun Ólafur Páll Jónsson, formaður sjálfbærni- og umhverfisnefndar, veita innsýn í vefinn.

Árið 2012 samþykkti háskólaráð nýja sjálfbærni- og umhverfisstefnu fyrir Háskóla Íslands og í kjölfarið var skipuð nefnd til að vinna að framkvæmd stefnunnar. Að undanförnu hefur nefndin unnið að gerð vefjarins en mikilvægt þótti að skapa vettvang þar sem hægt væri að fræðast um sjálfbærni- og umhverfismál innan skólans. Á vefnum er notendum jafnframt boðið að leggja inn hugmyndir um málaflokkinn og í tengslum við vefinn hefur verið opnuð Facebook-síða.

Við opnunina verður einnig hleypt af stokkunum ljósmyndasamkeppni um sjálfbær skref.Ljósmyndirnar skulu endurspegla hvernig viðkomandi stuðlar að, eða gæti stuðlað að, sjálfbæru og umhverfisvænu samfélagi innan skólans, í einkalífi eða sem borgari á Íslandi eða í víðara samhengi. Vegleg verðlaun verða í boði. Skráning og nánari upplýsingar um samkeppnina er að finna á vefnum.

Ljósmyndasamkeppnin er samstarfsverkefni sjálfbærni- og umhverfisnefndarinnar og Gaia, félags nemenda í umhverfis- og auðlindafræði.

Vefurinn er bæði á íslensku og ensku. Sjá nánar:
http://www.hi.is/umhverfismal/umhverfismal
http://english.hi.is/university/university_iceland_and_environment

Allir eru hjartanlega velkomnir! Boðið verður upp á kaffi og köku.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012