Quantcast
Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012

Upplýsingasamfélag framtíðar: tækifæri og hættur

Hvenær hefst þessi viðburður: 
28. febrúar 2014 - 12:00 til 13:15
Staðsetning viðburðar: 
Nánari staðsetning: 
Stofa 132
Image may be NSFW.
Clik here to view.
Haukur Arnþórsson
Opinn hádegisfyrirlestur á vegum Stofnunar stjórnsýslufræða og stjórnmála við Háskóla Íslands og Stjórnmálafræðideildar Háskóla Íslands í Öskju- stofu 132 Háskóla Íslands  föstudaginn 28. febrúar 2014 kl. 12.00-13.15.
 
Haukur Arnþórsson flytur fyrirlestur undir yfirskriftinni „Upplýsingasamfélag framtíðar: tækifæri og hættur“. Í fyrirlestrinum er fjallað um hvernig upplýsingasamfélag framtíðarinnar gæti litið út, þar á meðal hvað einkennir opið upplýsingasamfélag og hvert við erum komin, en einnig um hættur netsins sem eru til dæmis aukið eftirlit með netheimum. Að lokum verða fyrirspurnir og umræður.
 
Haukur Arnþórsson er doktor í rafrænni stjórnsýslu frá Háskóla Íslands og á að baki langa starfsreynslu á sviði rafræns lýðræðis og stjórnsýslu í íslenska stjórnkerfinu. Hann kennir rafræna stjórnsýslu við Stjórnmálafræðideild HÍ, veitir ráðgjöf á sviðinu, hefur unnið við útvarpsþáttagerð og verið virkur í fjölmiðlaumræðu.
 
Fundarstjóri er  Dr. Ómar H. Kristmundsson, prófessor við Stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands.

Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012