Quantcast
Channel: Viðburðir við HÍ - Events at the University of Iceland
Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012

Hvað er inflúensa?

$
0
0
Hvenær hefst þessi viðburður: 
4. mars 2014 - 20:00
Nánari staðsetning: 
Hannesarholt, Grundarstíg 10, 101 Reykjavík
Háskóli Íslands

Magnús Gottfreðsson prófessor í smitsjúkdómum og yfirlæknir á Landspítalanum mun veita innsýn í hina dularfullu og ógnvænlegu farsótt inflúensu í sögulegu samhengi. Fyrirlesturinn er ætlaður almenningi jafnt sem fræðimönnum. 

Samkvæmt skráningu Landlæknisembættisins eru líkur á að inflúensufaraldurinn 2014 nái hámarki á næstu 2-3 vikum.   Þó að í mörgum tilfellum valdi inflúensusmitið vægum einkennum er samt alltaf nokkur fjöldi einstaklinga sem verður alvarlega veikur. Í gegnum tíðina hefur okkur staðið ógn af þessum vágesti, enda spretta annað slagið upp mjög skæðir inflúensufaraldrar með tilheyrandi veikindum og dauðsföllum.

Fæstir gera sér grein fyrir því að í Spænsku veikinni, árið 1918, er áætlað að um 50 milljónir jarðarbúa hafi látist, miklu mun fleiri en létust í sjálfri fyrri heimstyrjöldinni.  En hvað er inflúensa? Hvað er "svínaflensa" eða "fuglaflensa"?  Hversu hrædd eigum við að vera gagnvart þessari farsótt og hvernig stendur á því að á hverju ári koma upp faraldrar? Af hverju eru þeir misalvarlegir?  Hvaða hjálp er í lyfjameðferð eða bólusetningum við inflúensu?

Aðgangseyrir er 1.000 kr. og hægt er að kaupa miða á www.midi.is


Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012