Hvenær hefst þessi viðburður:
28. febrúar 2014 - 12:00
Staðsetning viðburðar:
Nánari staðsetning:
Stofa 101

Efnt verður til málstofu föstudaginn 28. febrúar kl. 12-13:30 í Löbergi 101 undir yfirskriftinni: Nýting erfðaupplýsinga í heilbrigðisþjónustunni. Reynir Arngrímsson verður fundarstjóri.
Dagskrá:
- Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar Erfðagreiningar og prófessor við læknadeild HÍ, Er réttalætanlegt að nota rannsóknargögn í klínískri læknisfræði.
- Magnús Karl Magnússon, prófessor við læknadeild, Hvernig getum við nýtt erfðafræðigögn sjúklingum til hagsbóta.
- Hörður Helgason, settur forstjóri Persónuverndar, Sjálfsforræði og samfélagsskyldur.
- Salvör Nordal, forstöðumaður Siðfræðistofnunar, Notkun erfðaupplýsinga. Siðferðileg álitamál.