Quantcast
Channel: Viðburðir við HÍ - Events at the University of Iceland
Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012

Meistarafyrirlestur: Upplifun þátttakenda af Vaxtarsamningi Austurlands

$
0
0
Hvenær hefst þessi viðburður: 
6. febrúar 2014 - 16:00
Staðsetning viðburðar: 
Nánari staðsetning: 
Stofa 129
Háskóli Íslands

Ingunn Ósk Árnadóttir flytur fyrirlestur um verkefni sitt til meistaraprófs í landfræði. Heiti verkefnisins er: „Það á ekki að vera að veita mönnum styrk til að vera í samkeppni hver við annan“ Upplifun þátttakenda af Vaxtarsamningi Austurlands.

Í íslenskri byggðastefnu hefur aukin áhersla verið á að efla svæðisbundna ákvörðunartöku fólks í héraði og stuðla að dreifingu valds frá ríki til svæða og svæðisbundinna stofnanna. Vaxtarsamningar landshluta er byggðaaðgerð sem miðar að því að koma þeim markmiðum áleiðis, auk þess að efla nýsköpun og samkeppnishæfni atvinnulífsins og auka hagvöxt með virku samstarfi aðila. Verkefnastuðningur í gegnum samkeppnissjóði er einn þáttur vaxtarsamninga. Tilviksrannsókn var gerð á Vaxtarsamningi Austurlands og var markmið hennar tvíþætt. Annars vegar að greina áherslur við framkvæmd og styrkúthlutanir Vaxtarsamnings Austurlands, einkum með tilliti til ferðaþjónustuverkefna. Hins vegar að meta hvort þróun og framkvæmd vaxtarsamningsins hafi verið í samræmi við markmið vaxtarsamninga um samkeppnishæfni, valddreifingu, uppbyggingu samkeppnissjóða og útdeilingu fjármagns. Leitað var eftir viðhorfum fólks á Austurlandi og tekin viðtöl við 14 einstaklinga sem tengdust stjórnsýslu Vaxtarsamnings Austurlands eða höfðu hlotið styrk úr sjóðnum. Einnig voru gögn um vaxtarsamninga og byggðastefnu á Íslandi greind í þeim tilgangi að samtvinna upplýsingar og varpa frekara ljósi á framkvæmd og markmið vaxtarsamninga.

Niðurstöðurnar sýna að við framkvæmd Vaxtarsamnings Austurlands hefur verið lögð áhersla á klasasamstarf, ráðgjöf og eftirfylgni verkefna. Skiptar skoðanir voru um hvort að klasaáherslur henti öllum verkefnum og stöðum. Þörf er á meiri sveigjanleika til að verkefni sem geta verið til hagsbóta fyrir Austurland, þó að þau séu utan klasa, eigi möguleika á styrk og séu metin út frá staðbundnum aðstæðum og gæðum. Við mat á áhrifum samningsins á samkeppnishæfni Austurlands er aukið klasasamstarf innan fjórðungsins og sameining þjónustu- og stoðstofnana þó talið stuðla að samkeppnishæfni til lengri tíma. Hins vegar getur áhersla á uppbyggingu sömu atvinnuvega í vaxtarsamningum allra landshluta, m.a. ferðaþjónustu, dregið úr sköpun sérstöðu og samkeppnishæfni. Breytingar við endurnýjun á vaxtarsamningnum eftir þriggja ára starf þóttu draga úr aðkomu heimamanna og þeim vísi að valddreifingu sem skapaðist við upphaf samningsins árið 2007. Vonir eru bundnar við að sameining stoðstofnana í Austurbrú styrki landshlutann.

Leiðbeinendur: Magnfríður Júlíusdóttir, Gunnar Þór Jóhannesson og Karl Benediktsson
Prófdómari: Hjalti Jóhannesson


Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012