
Félagsráðgjafaþing verður haldið 19. febrúar n.k. á Hilton Reykjavík Nordica.
Auk fjölda mál-og vinnustofa um félagsráðgjöf og fagþróun verða fluttir tveir hátíðarfyrirlestrar:
Vivien Cree Prófessor í félagsráðgjöf við Háskólann í Edinborg flytur annan hátíðarfyrirlesturinn en hún hefur meðal annars skrifað um þróun félagsráðgjafar.
Seinni hátíðarfyrirlesturinn verður til heiðurs dr. Sigrúnu Júlíusdóttur, prófessor við Félagsráðgjafardeild HÍ, í tilefni af 70 ára afmæli hennar. Fyrirlesturinn ber yfirskriftina „Félagsráðgjafinn og fræðimaðurinn Dr. Sigrún Júlíusdóttir“.
Þess má geta að Dr. Sigrún Júlíusdóttir átti 70 ára afmæli þann 3. febrúar, og óskar Félagsráðgjafardeild henni hjartanlega til hamingju með daginn.
Skráning er nauðsynleg á heimasíðu Félagsráðgjafafélags Íslands