Hvenær hefst þessi viðburður:
22. febrúar 2014 - 13:00
Nánari staðsetning:
Háskólabíó

Febrúarbrautskráning kandídata frá Háskóla Íslands fer fram í Háskólabíói laugardaginn 22. febrúar nk. kl. 13.00. Kandídatar fá þá afhent prófskírteini sín við hátíðlega athöfn.
Kandídötum er ætlað afmarkað svæði og eru beðnir um að mæta ekki síðar en kl. 12.00. Hver kandídat verður með númerað sæti sem kemur fram á nafnalista sem afhentur verður með dagskrá við innganginn og er sætaskipan í samræmi við afhendingu prófskírteina. Umsjónarfólk verður á staðnum til að leiðbeina um sætaskipan.
Prófskírteini verða afhent í röð eftir fræðasviðum: Félagsvísindasvið, Heilbrigðisvísindasvið, Hugvísindasvið, Menntavísindasvið og Verkfræði- og náttúruvísindasvið.
Kandídatar fá heimsend bréf með nánari upplýsingum.