
Föstudaginn 7.febrúar fer fram doktorsvörn við Matvæla- og næringarfræðideild Háskóla Íslands. Þá ver Svandís Erna Jónsdóttir doktorsritgerð sína „Verklag í lýðheilsunæringarfræði - Heilsusamlegt norrænt mataræði“ (An exploration of public health nutrition practice - The Healthy Nordic Diet).
Andmælendur eru dr. Stefán Hrafn Jónsson dósent við Félagsvísindasvið Háskóla Íslands og dr. Lene Frost Andersen prófessor í næringarfræði við Háskólann í Osló. Leiðbeinendur voru dr. Inga Þórsdóttir, prófessor við Matvæla- og næringarfræðideild og forseti Heilbrigðisvísindasviðs og dr. Ingibjörg Gunnarsdóttir, prófessor við Matvæla- og næringarfræðideild og forstöðumaður Rannsóknastofu í næringarfræði. Auk leiðbeinenda voru dr. Roger Hughes prófessor við Bond University í Ástralíu og dr. Matti Uusitupa prófessor við University of Eastern Finland í doktorsnefnd.
Dr. Þórhallur Ingi Halldórsson forseti Matvæla- og næringarfræðideildar stjórnar athöfninni sem fer fram í Hátíðasal, Aðalbyggingu H.Í. og hefst athöfnin klukkan 10.00.
Ágrip úr rannsókn
Doktorsritgerðin byggir á tveimur fjölþjóðlegum rannsóknarverkefnum, JOBNUT og SYSDIET. Meginmarkmiðin voru að auka þekkingu á stöðu evrópskra lýðheilsunæringarfræðinga og athafnagetu þeirra (JOBNUT) og að auka þekkingu á mataræði norræns fólks með efnaskiptavillu með því að rannsaka næringarefni í venjulegu mataræði þeirra og breytingar á neyslu næringarefna við val á hollu norrænu mataræði (SYSDIET).
Niðurstöðurnar sýndu að sterkust samstaða um þætti sem eru nauðsynlegir fyrir starfshæfni lýðheilsunæringarfræðinga er um næringarvísindi, fagmennsku og ábyrgð, greiningaraðferðir og lýðheilsutengda þjónustu. Augljós áhersla var á skipulagningu, stýringu og næringarfræðilegar íhlutanir. Venjulegt mataræði norræns hóps með efnaskiptavillu var ófullnægjandi og einkenndist af of mikilli neyslu á mettuðum fitum og salti og lágri neyslu af fjölómettuðum fitum og trefjum. Auk þess var neysla sumra vítamína og steinefna of lítil. Eftir að venjulegu fæði þátttakenda var skipt út fyrir hollt norrænt fæði urðu jákvæðar breytingar á neyslu rannsóknarhópsins þar sem neysla mettaðrar fitu og salts lækkaði. Þá hækkaði hlutfall ómettaðrar fitu af heildar fituneyslu og trefjaneysla jókst. Hollur norrænn matur jók enn fremur magn C, D og E vítamína, fólats, magnesíums og kalíums sem fólk fékk með matnum.
JOBNUT rannsóknin safnaði saman þekkingu hóps sérfræðinga á sviði lýðheilsunæringarfræði um meginhlutverk og nauðsynlega hæfni fyrir starfsgetu stéttarinnar. SYSDIET rannsóknin leiddi í ljós að einföld ráð um fæðuval með áherslu á hollar norrænar matartegundir leiddi til mun heilsusamlegra mataræðis í norrænum hópi fólks með efnaskiptavillu en venjulegt mataræði þeirra. Fæðuval sem byggist á staðbundnum matartegundum er umhverfisvænt og gæti hjálpað yfirvöldum að minnka kolefnaslóðina.
Um doktorsefnið
Svandís er fædd árið 1977. Hún lauk BS prófi í líffræði frá H.Í. árið 2002, MS prófi í næringarfræði frá H.Í. árið 2008 og hóf doktorsnám í næringarfræði um haustið sama ár. Samhliða doktorsnáminu var Svandís stundakennari við H.Í. og kom að öðrum verkefnum hjá Rannsóknastofu í næringarfræði. Svandís hóf störf hjá Myllunni í júlí 2012 þar sem hún er nú gæðastjóri. Þá hefur Svandís sinnt nefndarstörfum fyrir Matvæla- og næringarfræðafélag Íslands. Eiginmaður Svandísar er Ólafur Þráinsson og eiga þau tvo syni, Arnór (f. 2004) og Elvar (f. 2009).