Clik here to view.

Föstudaginn 31. janúar kl. 14:00 ver Friðrik Larsen doktorsritgerð sína: Positive Power: The Untapped Potential of Branding the Electricity Sector.
Þetta er önnur doktorsvörnin í markaðsfræði við Viðskiptafræðideild og í tilefni af því býður Viðskiptafræðideild til morgunverðarfundar með andmælendum Friðriks.
Dagskrá
08.00 Kaffi og léttar veitingar bornar fram fyrir framan Hátíðasal.
08.30 Dr. Þórhallur Guðlaugsson, fundarstjóri, setur fundinn.
08.40 Dr. Anne Rindell flytur erindið „Can Heritage be Strategic“.
09:10 Dr. Nick Lee flytur erindið The Talent Myth in Sales“.
09:40 Spurningar og umræður.
10:00 Fundi lýkur.
Um fyrirlesara:
Anne Rindell er dósent í markaðsfræði við Hanken School of Economics í Helsinki. Eitt af sérsviðum hennar snýr að arfleifð fyrirtækja og áhrif arfleifðar á ímynd vörumerkis í samtímanum, verk hennar hafa birst í fjölda virtra tímarita. Nánari upplýsingar um hana eru á þessum hlekk.
Nick Lee er prófessor í markaðsfræði við Aston Business School. Meðal rannsóknarsviða hans eru sölustjórnun, siðfræði, félagsleg sálfræði og rannsóknaraðferðir. Fjallað hefur verið um verk hans í The Times, the Financial Times og BBC Breakfast. Verk hans hafa birst í fjölda virtra tímarita og er hann í ritstjórn European Journal of Marketing auk annarra tímarita. Nánari upplýsingar um hann má finna á þessum hlekk.
Allir velkomnir.