Quantcast
Channel: Viðburðir við HÍ - Events at the University of Iceland
Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012

Tónlist fyrir flautu og píanó á háskólatónleikum

$
0
0
Hvenær hefst þessi viðburður: 
29. janúar 2014 - 12:30
Staðsetning viðburðar: 
Nánari staðsetning: 
Hátíðarsalur
Kristján Karl Bragason, píanó og Hafdís Vigfúsdóttir, flauta.
Á háskólatónleikunum flytja Kristján Karl Bragason, píanó og Hafdís Vigfúsdóttir, flauta verk eftir Claude Debussy, Edison Denisov, Þorkel Sigurbjörnsson og Gabriel Fauré.
 
Tónleikarnir verða haldnir í Hátíðarsal í Aðalbyggingu og hefjast kl. 12.30. 
 
Enginn aðgangseyrir er að tónleikunum og allir eru velkomnir.
 
Nánari upplýsingar um flytjendurna:
 
Kristján Karl Bragason nam píanóleik við Tónlistarskólann á Akur¬eyri en síðar við Tónlistarskólann í Reykjavík. Síðar nam í Frakklandi en árið 2012 lauk hann meistaraprófi frá konservatóríinu í Maastricht í Hollandi. Hann hefur hlotið ýmsar viðurkenningar á ferli sínum, m.a. fyrstu verðlaun í fyrstu píanókeppni EPTA á Íslandi árið 2000 og fyrstu verðlaun í Prokofiev-spunakeppninni í Versölum árið 2007. Hann hefur í tvígang hlotið styrk úr minningarsjóði um Birgi Einarson.
 
Hafdís Vigfúsdóttir lauk burtfararprófi í flautuleik frá Tónlistarskóla Kópavogs árið 2002 og BA-prófi frá Listaháskóla Íslands þremur árum síðar. Hún lauk BA-prófi frá konunglega konserva¬toríinu í Den Haag í Hollandi árið 2010 og árið 2013 meistaraprófi frá Norges Musikkhøgskole. Hún hefur líka numið í Frakklandi.
 
Hafdís og Kristján Karl hafa leikið saman sem dúó um árabil. Þau sóttu sér framhaldmenntun í tónlist í Frakklandi, Hollandi og Noregi og eru nú búsett í Reykjavík þar sem þau starfa að list sinni og við kennslu. Frá árinu 2010 hafa þau staðið fyrir tónlistarhátíðinni Bergmál á Dalvík, heimabæ Kristjáns, í samvinnu við Grím Helgason klarínettu¬leikara.
 

Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012