Hvenær hefst þessi viðburður:
24. janúar 2014 - 14:00
Nánari staðsetning:
Fyrirlestrasal

Opið málþing um Nelson Mandela
Nelson Mandela og máttur sáttargjörðar andspænis aðskilnaðarstefnunni og afleiðingum hennar.
Stofnun dr. Sigurbjörns Einarssonar, Guðfræðistofnun Háskóla Íslands, Alþjóðamálastofnun Háskóla Íslands og Félag Sameinuðu þjóðanna á Íslandi efna til málþings í fyrirlestrasal Þjóðminjasafnsins föstudaginn 24. janúar kl. 14 - 16.
Fyrirlesarar eru dr. Sigríður Dúna Kristmundsdóttir, prófessor og fyrrverandi sendiherra í Suður-Afríku, sem fjallar um ævi- og stjórnmálferil Mandela og dr. Arnfríður Guðmundsdóttir, prófessor og formaður stjórnar Guðfræðistofnunar, sem ræðir Kairos-skjalið, guðfræðileg viðbrögð við aðskilnaðarstefnu Suður Afríku, Apartheid.
Dagskrá:
- Bogi Ágústsson, formaður stjórnar Stofnunar dr. Sigurbjörns Einarssonar setur málþingið.
- Dr. Sigríður Dúna Kristmundsdóttir: Ævi og stjórnmálaferill Mandela
- Dr. Arnfríður Guðmundsdóttir: Kairos-skjalið; guðfræðileg viðbrögð við aðskilnaðarstefnu Suður Afríku, Apartheid.
- Viðbrögð og umræður.