Quantcast
Channel: Viðburðir við HÍ - Events at the University of Iceland
Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012

Vísindakynning Landakotsskóla

$
0
0
Hvenær hefst þessi viðburður: 
28. apríl 2017 - 9:30 til 12:00
Staðsetning viðburðar: 
Nánari staðsetning: 
Tröð
Vísindakynning Landakotsskóla

Það verður líf og fjör í Tröð þegar nemendur Landakotsskóla kynna verkefni á sviði lífvísinda sem þeir hafa unnið að undanfarnar vikur. Nemendahópurinn spannar alla aldursflokka frá 5 til 15 ára, og verða tæplega 30 verkefni kynnt fyrir gestum og prófdómurum á vegum Stofnunar Sæmundar fróða. Landakotsskóli og Stofnun Sæmundar fróða við Háskóla Íslands hafa gert með sér samning um að hvetja ungt fólk til vísindaiðkunar en nemendur í Landakotsskóla vinna að verkefnum undir leiðsögn kennara sinna, ýmist ein eða í litlum hópum, og kynna verkefnin í Háskóla Íslands. Þetta samstarf hófst á síðasta ári og tókst þá svo vel að ákveðið var að halda því áfram.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012