Hvenær hefst þessi viðburður:
26. apríl 2017 - 12:00 til 13:00
Staðsetning viðburðar:
Nánari staðsetning:
Stofa 101

Félag stjórnmálafræðinga stendur fyrir, í samstarfi við Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála, hádegisfundi þar sem Haukur Arnþórsson mun flytja erindi undir yfirskriftinni „Skipulagsleysi, málþóf og gæði lagasetningar: Raunmyndir af störfum Alþingis“.
Í erindinu ræðir Haukur um skipulag, málþóf og gæði lagasetningar á Alþingi frá því það var sameinað í eina deild árið 1991. Við sameininguna var myndaður gagnagrunnur um þingmál, þingmenn og þingfundi og notar Haukur gögn hans til þess að greina hvernig þingið hefur starfað - og setur hann þær upplýsingar í samhengi við kenningar um þjóðþing og rannsóknir á störfum þeirra í öðrum ríkjum.
Allir velkomnir.