Quantcast
Channel: Viðburðir við HÍ - Events at the University of Iceland
Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012

Fyrirlestur: Rithöfundar Rómafólks

$
0
0
Hvenær hefst þessi viðburður: 
6. apríl 2017 - 16:00 til 17:00
Staðsetning viðburðar: 
Háskóli Íslands

Í evrópskum skrifum er Rómafólki lýst sem framandi, ástríðufullu, seiðandi, frjálsu, ólæsu og ósiðmenntuðu. Færri vita að bókmenntir Rómafólks spanna meira en heila öld. 8. apríl er alþjóðlegur dagur Rómafólks og markmið hans er að vekja fólk til umhugsunar um menningu og sögu Rómafólks og vandamálum fólksins, en hópnum er lýst sem stærsta etníska minnihlutahópi í Evrópu. Af þessu tilefni ætlar Sofiya Zahova, nýdoktor og fræðimaður við Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur, að halda fyrirlestur tileinkaðan rithöfundum Rómafólks.

Fyrirlesturinn er á vegum Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum og fer fram 6. apríl kl. 16-17 í fyrirlestrarsal Þjóðminjasafnsins. Hann fer fram á ensku og allir eru velkomnir.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012