Quantcast
Channel: Viðburðir við HÍ - Events at the University of Iceland
Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012

Mæði-visnuveira og HIV: Margt er líkt með skyldum

$
0
0
Hvenær hefst þessi viðburður: 
23. mars 2017 - 12:20 til 13:00
Staðsetning viðburðar: 
Nánari staðsetning: 
Keldur - bókasafn
Háskóli Íslands

Fyrirlesarar: Valgerður Andrésdóttir og Stefán Ragnar Jónsson, sérfræðingar á Keldum.

Mæði-visnuveira og HIV eru retróveirur af flokki lentiveira og eru náskyldar. Mæði-visnuveira hefur því verið rannsökuð sem módel fyrir HIV.

Allar retróveirur innlima erfðaefni sitt í litninga hýsilsins með hjálp veirupróteinsins integrase, og er þessi innlimun eitt af lyfjamörkum fyrir HIV. Það hefur hins vegar reynst erfitt að greina nákvæmlega innlimunarflóka HIV, og hefur þurft að setja stökkbreytingar í integrase ensímið til þess að gera það greiningarhæft. Með því að nota frysti-rafeindasjá (cryo-electron microscopy) tókst að greina gerð óstökkbreytts innlimunarflóka mæði-visnuveiru mjög nákvæmlega og var hann borinn saman við sambærilega rannsókn í HIV þar sem HIV integrasi var stökkbreyttur til að gera próteinið leysanlegra og virkara. Flókarnir voru að mestu eins, en þó vantaði í HIV flókann atriði sem mæði-visnu  veiru flókinn gaf upplýsingar um. Þessar upplýsingar gætu nýst við hönnun sameinda sem hindra innlimun HIV.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012