Hvenær hefst þessi viðburður:
24. mars 2017 - 12:00 til 16:30
Staðsetning viðburðar:
Nánari staðsetning:
N-132

Háskóli Íslands (HÍ) og Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands (ÍSÍ) standa fyrir ráðstefnunni „Að stjórna íþróttafélagi – Ekkkert mál?“ föstudaginn 24. mars kl. 12-16.30 í stofu 132 í Öskju. Áhersla verður á rekstur, ábyrgð og mannauð íþróttafélaga.
Fyrir nokkrum árum gerðu HÍ og Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands ÍSÍ með sér samning um eflingu samstarfs á sviði íþrótta. Tilgangurinn var að staðfesta vilja beggja aðila til að efla samstarf á breiðum þverfræðilegum grundvelli og gera það sýnilegt, m.a. með því að vinna í sameiningu að ráðstefnum og málþingum. Þessi ráðstefna hefur það að markmiði að efla samstarf háskólasamfélagsins og þeirra aðila sem koma því starfi sem fram fer innan íþróttafélaga og fá fram umræðu um ýmis málefni og álitamál sem varða stjórnun og rekstur þeirra.
Lárus L. Blöndal, forseti ÍSÍ, og Jón Atli Benediktsson, rektor HÍ, setja ráðstefnuna kl. 12 og í fram haldinu taka við erindi og umræður í fjórum hlutum til um kl. 16:30. Þar verður áhersla lögð á fjármála- og lagaumhverfi og rekstur íþróttafélaga, ábyrgð félaganna og stjórnarmanna með tilliti til trygginga iðkenda og launþega, hlut starfsmanna og sjálfboðaliða innan íþróttahreyfingarinnar og íþróttauppeldi. Fyrirlesarar koma bæði úr háskólasamfélaginu og frá íþróttahreyfingunni.
Að ráðstefnu lokinni er þátttakendum frjálst að halda áfram skemmtilegu spjalli í Stúdentakjallaranum á Háskólatorgi.
Ráðstefnustjóri er Jón Örn Guðbjartsson, sviðsstjóri markaðs- og samskiptasviðs Háskóla Íslands, en nánari dagskrá má sjá hér að neðan.