
Mánudaginn 26. ágúst verður tekið á móti nýnemum í grunnnám við Menntavísindasvið. Dagskráin hefst kl. 8.30 í Skriðu með ávörpum Jóhönnu Einarsdóttur forseta Menntavísindasviðs og fulltrúa nemenda. Síðan verða haldnir kynningarfundir með deildarforsetum og formönnum námsbrauta. Mikilvægt er að nýnemar mæti og kynni sér þá fjölbreyttu þjónustu sem Menntavísindasvið hefur upp á að bjóða.
Kynning á námsumhverfi, þjónustu og húsnæði
Nemendum verður skipt í smærri hópa og fulltrúar nemendafélaga fylgja þeim í Menntasmiðju, kennsluskrifstofu, bókasafn, bóksölu, til alþjóðafulltrúa og til starfs- og námsráðgjafa. Markmiðið er að nýnemar kynnist húsnæði Menntavísindasviðs við Stakkahlíð, helstu þjónustu sem er í boði og ekki síst samnemendum sínum. Þá verður námsumsjónarkerfið Moodle og innri vefur skólans Ugla kynnt nemendum.
Kennsla hefst samkvæmt stundaskrá eftir hádegi.