Quantcast
Channel: Viðburðir við HÍ - Events at the University of Iceland
Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012

Verkefnavaka 2017

$
0
0
Hvenær hefst þessi viðburður: 
16. mars 2017 - 17:00 til 22:00
Staðsetning viðburðar: 
Þjóðarbókhlaða
Náms- og starfsráðgjöf Háskóla Íslands, ritver og bókasafn Menntavísindasviðs, ritver Hugvísindasviðs og Landsbókasafn Íslands - Háskólabókasafn standa fyrir Verkefnavöku gegn frestunarpest og ritkvíða á Þjóðarbókhlöðunni fimmtudaginn 16. mars kl. 17–22.
 
Boðið verður upp á dagskrá fyrir alla stúdenta Háskóla Íslands sem eru með verkefni í smíðum, smá eða stór, námskeiðsverkefni eða lokaverkefni. Á verkefnavöku gefst gott tækifæri til þess að vinna í verkefnum eina kvöldstund í góðum félagsskap.
 
Hvetjandi fræðsla í boði.
Leiðsögn sérfræðinga um allt það sem viðkemur verkefnaskrifum
Vinnustofur og örnámskeið um árangursríka leit á bókasafni
 
Allir velkomnir!
 
Markmið vökunnar eru 
að gefa stúdentum færi á að vinna að verkefnum sínum utan hefðbundins vinnutíma eina kvöldstund og fá aðstoð og hvatningu frá jafningjum, kennurum eða öðrum starfsmönnum Háskólans,
að vekja athygli á þeim mikla vanda í háskólum heimsins að fjöldi stúdenta kvíðir því að skrifa og margir hverfa frá námi þegar lokaverkefnið eitt er eftir,
að vekja athygli á að unnt er að aðstoða höfunda á öllum stigum ritunarferlisins og hjálpa þeim að komast af stað sem frestað hafa verkefnum of lengi.
 
Fyrirmynd að verkefnavöku er sótt til ritvera í Þýskalandi sem héldu fyrstu vökuna 2010 undir nafninu Lange Nacht der aufgeschobenen Hausarbeiten. Verkefnið hefur breiðst út til háskóla austan hafs og vestan og er á ensku kallað Long night against procrastination.
 
 

Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012