Quantcast
Channel: Viðburðir við HÍ - Events at the University of Iceland
Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012

Grunnnám - Hvað svo?

$
0
0
Hvenær hefst þessi viðburður: 
4. apríl 2017 - 16:00 til 17:30
Staðsetning viðburðar: 
Nánari staðsetning: 
Litla torg
Grunnnám hvað svo?
Grunnnám - Hvað svo?
 
Hvað er í boði í Háskóla Íslands að loknu grunnnámi?
 
Getur nemandi með BA-gráðu í mannfræði farið í talmeinafræði?
Getur nemandi með BS-gráðu í hjúkrunarfræði farið í framhaldsnám í guðfræði?
Getur nemandi með BS-gráðu í tölvunarfræði farið í framhaldsnám í leikskólakennarafræði?
Hverjar eru forkröfurnar fyrir hverja og eina námsleið í framhaldsnámi við Háskóla Íslands?
 
Sérfræðingar deilda og fræðasviða Háskóla Íslands veita svör við þessum spurningum og ótal fleiri á Litla-Torgi þriðjudaginn 4. apríl milli kl. 16 og 17:30.
 
Enn fremur verða náms- og starfsráðgjafar á staðnum og veita ráðgjöf og fulltrúar frá Nemendaskrá aðstoða við innritun og skrásetningu. Háskóli Íslands á í samstarfi við yfir 500 háskóla um allan heim og sérfræðingar frá Skrifstofu alþjóðasamskipta verða einnig viðstaddir og kynna hina fjölbreyttu möguleika í skiptinámi. 
 
Viðburðurinn er ætlaður öllum þeim sem hyggja á framhaldsnám í Háskóla Íslands.
 
Komdu og kynntu þér ótal möguleika á framhaldsnámi.
 

Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012