Hvenær hefst þessi viðburður:
1. mars 2017 - 12:30 til 13:00

Á háskólatónleikum miðvikudaginn 1. mars nk. flytja Anna Jónsdóttir, sópran, Ólöf Sigursveinsdóttir, selló, og Sophie Schoonjans, harpa, Hvítuvötn, verk í sjö hlutum, eftir Óliver Kentish við ljóð Ingimars Erlends Sigurðssonar.
Tónleikarnir hefjast kl. 12.30 og þeir verða í Kapellunni á annarri hæð Aðalbyggingar Háskóla Íslands.
Enginn aðgangseyrir er að tónleikunum og allir eru velkomnir.
Tónleikanefnd Háskóla Íslands