Hvenær hefst þessi viðburður:
16. mars 2017 - 9:00
Staðsetning viðburðar:
Nánari staðsetning:
K-208

Sigurlaug Vigdís Einarsdóttir lauk M.Ed. í Náms- og kennslufræði með áherslu á Mál og læsi 2016. Hún útskrifaðist sem leikskólakennari 1992 og hefur síðan þá sinnt allt frá leikskólakennslu til leikskólastjórnunar í leikskólum í Reykjavík og lokið námi m.a. í sérkennslufræðum. Rannsóknin sem Sigurlaug kynnir hafði það að markmiði að þróa leiðir í leikskólastarfi til að auka orðaforða barna og jafnframt að auka skilning þeirra á eiginleikum efna í umhverfinu. Unnið var að þróun námsleikja þar sem fengist var við að efla orðaforða í tengslum við efnafræðileg viðfangsefni.