
Námsbraut um kennslu í framhaldsskólum og Rannsóknarstofa um þróun skólastarfs við Háskóla Íslands boða til funda um rannsóknir á framhaldsskólastarfi. Málstofurnar, sem verða átta/níu talsins, verða haldnar í húsnæði Menntavísindasviðs Háskóla Íslands við Stakkahlíð. Erindin eru að jafnaði um 20 mínútur og jafnlangur tími er ætlaður til umræðna. Erindin eru flutt á íslensku nema annað sé tekið fram.
Helga Þórey Júlíudóttir, sérkennari við Tækniskólann, heldur fyrirlestur undir yfirskriftinni:Á jaðri jaðarsins í framhaldsskóla fyrir alla.
Ágrip: Starfsbraut – sérnám innan Tækniskólans er ætlað fötluðum nemendum sem ekki eiga kost á námi á starfsbrautum framhaldsskólanna vegna verulegs hegðunar- og námsvanda ásamt einhverfu. Fjallað verður um uppbyggingu sérnámsins og það sett samhengi við annað nám fyrir nemendur með þroskahömlun og reynslu stefnumótunar- og fagaðila af starfi sínu við það. Rætt verður um framtíðarsýn sérnámsins og lagðar fram tillögur til úrbóta.
Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir.
Upptökur af völdum fyrirlestrum hafa birst á vef Rannsóknarstofu um þróun skólastarfs.