Hvenær hefst þessi viðburður:
16. febrúar 2017 - 18:00
Staðsetning viðburðar:

Viltu kynnast einhverjum sem talar reiprennandi tungumálið sem þú ert að læra? Viltu deila þínu eigin móðurmáli með einhverjum sem er að reyna að ná tökum á því? Einstakt tækifæri til að kynnast nýjum menningarheimum og heimsborgurum í Reykjavík í notalegu umhverfi og æfa sig í tungumálum í leiðinni.
Þessi viðburður er samstarf Borgarbókasafns við Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum, Mála- og menningardeild og námsleiðina Íslenska sem annað mál við Háskóla Íslands, félagið „Linguae" og Íslenskuþorpið.
Sjá nánar um Café Lingua og einnig viðburð á facebook.