Hvenær hefst þessi viðburður:
15. febrúar 2017 - 12:00 til 13:00
Staðsetning viðburðar:
Nánari staðsetning:
Fyrirlestrasalur

Jakob Orri Jónsson flytur erindi í hádegisfyrirlestraröðinni Nýjar rannsóknir í íslenskri fornleifafræði. Fyrirlesturinn fer fram í Þjóðminjasafninu 15. febrúar kl. 12:00 til 13:00 og nefnist „Fornleifafræði neyslu á 17. og 18. öld; Hólahólar og Miðvellir á Snæfellsnesi“.
Kynntir verða tveir staðir á utanverðu Snæfellsnesi, Hólahólar og Miðvellir. Fjallað verður um sögu þeirra, efnahagslega og félagslega stöðu frá 17. öld og fram til loka þeirrar 19., og verður fjallað um fornleifafræðilegar rannsóknir sem fram fóru þar í ágúst 2016, niðurstöður þeirra ræddar og vöngum velt um neyslu lúxusvarnings meðal lægra settra heimila á 17. og 18. öld.