Quantcast
Channel: Viðburðir við HÍ - Events at the University of Iceland
Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012

Orðræðugreining á túlkun ungra kvenna á auglýsingum með fyrirsætum í yfirstærð

$
0
0
Hvenær hefst þessi viðburður: 
14. febrúar 2017 - 15:00 til 16:00
Staðsetning viðburðar: 
Nánari staðsetning: 
H101
Helen Malsen

Helen Malson, dósent í félagssálfræði við University of the West of England í Bristol heldur fyrirlestur, á Menntavísindasviði Háskóla Íslands.

Í fyrirlestrinum greinir hún frá rannsókn sinni sem unnin er í samstarfi við, Katie Beale og Irmgard Tischner. Sjónum er beint að túlkun ungra kvenna, á auglýsingum með fyrirsætum í yfirstærð, í menningu sem hampar einhliða fegurðarímyndum og upphefur grannan líkamsvöxt. En hingað til hefur slíkum auglýsingum verið lítill gaumur gefinn. Sjá nánari lýsingu í útdrætti á ensku.

Hún beitir gagnrýnu femínísku sjónarhorni á viðfangsefni sín en þau beinast einkum að kyngervi, hugverum (e. subjectivities) og líkömum, með sérstakri áherslu á átraskanir og birtingarmyndir kvenleikans. Þessa dagana skoðar hún reynslu hagsmunaaðila af umönnun barna og ungs fólks með átraskanir. Auk þess er hún að þróa og meta áhrif inngripa í skólum, sem beinast að því að víkka út þröngar staðalmyndir kynjanna. Hún er höfundur bókanna The Thin Woman: Feminism, Post-Structuralism and The Social Psychology of Anorexia Nervosa (Routledge 1998) og ásamt Maree Burns, og Critical Feminist Approaches to Eating Dis/Orders (Routledge 2009).

Fyrirlesturinn fer fram á ensku og er haldin á vegum RannKyn: Rannsóknarstofu um menntun, jafnrétti og kyngervi.

Öll velkomin.

Viðburðurinn á Facebook.

Reading the ‘plus-size’ model: A discourse analysis of young women’s interpretations of advertising images of larger women.

Abstract
Critical feminist researchers and others have amply elucidated the perniciousness of contemporary monolithic beauty ideals and, in particular, the near-ubiquitous idealisations of slenderness. In this context the advent of media images featuring ‘plus-size’ models has been quite rightly heralded as a welcome challenge to this hegemony. Yet little attention has been given to women’s interpretations of these images. In this brief report we outline a preliminary exploration of young women’s views about advertising images featuring ‘plus-size’ models. We used a discourse analytic method to analyse 35 young women responses to a questionnaire asking for their views and feelings about three adverts featuring ‘plus-size’ models. Our analysis suggests that, while the women featured in the adverts were positively construed in various ways, participants also drew on distinctly conservative notions of femininity in their readings of ‘plus-size’ models such that an idealised construction of a ‘plus-sized’, traditional and domestic femininity was contrasted with a highly pejorative framing of ‘stick thin’ women as vain, vindictive and self-obsessed. Our findings, we suggest, while provisional, raise important questions about how best to implement feminist interventions.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012