Quantcast
Channel: Viðburðir við HÍ - Events at the University of Iceland
Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012

Með fróðleik í fararnesti - Snjór og ís í Bláfjöllum

$
0
0
Hvenær hefst þessi viðburður: 
17. febrúar 2017 - 16:00
Nánari staðsetning: 
Skrifstofa Ferðafélags Íslands, Mörkinni 6
Háskóli Íslands
Boðið verður upp á gönguferð með fræðslu um snjó og ís föstudaginn 17. febrúar kl. 16. Brottför verður á einkabílum frá skrifstofu FÍ, Mörkinni 6.
 
Ekið verður áleiðis í Bláfjöll og gerðar alls konar tilraunir með snjó og snjóflóð skoðuð. Guðfinna Aðalgeirsdóttir, dósent í jöklafræði við Háskóla Íslands, fræðir göngugesti um hvernig jöklar hreyfa sig og af hverju þeir eru að minnka. Svo setja gestir upp höfuðljós og fara í ljósagöngu. Gestir komi með skóflur og ljós. Áætlað er að ganga taki 3-4 klst.
 
Gangan er hluti af verkefni Háskóla Íslands og Ferðafélags Íslands, Með fróðleik í fararnesti, sem hófst á aldarafmæli skólans árið 2011. Reynsla og þekking fararstjóra Ferðafélagsins og þekking kennara og vísindamanna Háskólans blandast saman í þessum áhugaverðu gönguferðum. Markmiðið með þeim er að vekja áhuga almennings á fræðslu og hollri útivist og fjölga valkostum í þeim efnum. Um leið er vakin athygli og vonandi áhugi á fjölbreyttri starfsemi Háskóla Íslands og Ferðafélagsins.
 
Þátttaka ókeypis og allir velkomnir.
 
Næstu ferðir:
Laugardaginn 22. apríl kl. 11 - Fuglarnir fljúga heim
Laugardaginn 29. apríl kl. 12 - Á slóðum kræklingsins í Hvalfirði
Þriðjudaginn 2. maí kl. 17 - Eldfjalla- og gjótukönnun í Búrfellsgjá
Þriðjudaginn 13. júní kl. 17 - Pöddulíf í Elliðaárdal
Þriðjudaginn 21. júní kl. 16 - Álfaganga um Jónsmessu
Laugardaginn 26. ágúst kl. 11 - Sveppasöfnun í Heiðmörk
Laugardadinn 9. september kl. 11 - Holdsveiki og Hallgerður langbrók
Laugardaginn 23. september kl. 11 - Margt býr í Öskjuhlíðinni
Laugardaginn 7. október kl. 13.30 - Fjöruferð í Gróttu
 
 

Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012