Hvenær hefst þessi viðburður:
23. febrúar 2017 - 16:00 til 17:30
Staðsetning viðburðar:
Nánari staðsetning:
Listgreinahús

Opið hús ― List- og verkgreinar (myndlist, textíll, tónlist, leiklist og smíði) á Menntavísindasviði Háskóla Íslands
Menntavísindasvið Háskóla Íslands býður skólameisturum, námsráðgjöfum og list- og verk/hönnunarkennurum í öllum framhaldsskólum í opið hús.
Dagskrá
- Oddvitar kjörsviðsgreinanna, myndlist, textíll, tónlist, leiklist og smíði, kynna innihald kennaranámsins í hverri faggrein
- Fyrirspurnir og umræður
- Þátttakendum sýnt húsnæði skólans
- Kynning á framboði í nýsköpunar- og frumkvöðlamennt í kennaranámi (stofa LS-106)
Boðið verður upp á léttar veitingar.
Nánari upplýsingar: asahragn@hi.is