
Fulltrúi frá Skrifstofu alþjóðasamskipta fer yfir umsóknarferlið og atriði sem hafa ber í huga þegar sótt er um skiptinám innan Evrópu. Frestur til að skila inn umsókn um skiptinám í Evrópu skólaárið 2017-2018 er 1. mars 2017.
Háskóli Íslands er í samstarfi við yfir 400 háskóla víða um heim og árlega nýta sér fjölmargir að taka hluta af námi sínu erlendis og sækja sér þannig sérhæfingu í námi og dýrmæta reynslu. Skiptinámið er metið inn í námsferil við HÍ.
Næsti fundur:
13. febrúar kl. 12-13 í stofu HT-300
Kostir þess að fara í skiptinám:
» fjölbreyttara námsframboð
» skiptinámið er metið inn í námsferil við Háskóla Íslands
» tækifæri til að kynnast menningu annarra landa
» einfaldara og ódýrara en að fara í nám á eigin vegum
» skólagjöld eru felld niður, m.a. við háskóla í Bandaríkjunum og Kanada
» aukin tungumálakunnátta
» dýrmæt reynsla sem nýtist í frekara námi eða á vinnumarkaði
Sjá nánari upplýsingar um umsóknarferlið og námsmöguleika á http://www.hi.is/skiptinam