Hvenær hefst þessi viðburður:
16. febrúar 2017 - 15:00 til 16:30
Staðsetning viðburðar:
Nánari staðsetning:
Stofa 343

Þann 16. febrúar nk. flytur Helga Gottfreðsdóttir, prófessor í ljósmóðurfræði við Hjúkrunarfræðideild, erindi í tilefni að framgangi sínum.
Á Heilbrigðisvísindasviði er haldið upp á framgang eða ráðningu nýrra prófessora með sérstökum kynningarfyrirlestri. Athafnirnar hefjast með stuttu yfirliti yfir helstu störf viðkomandi prófessors, en svo tekur hann sjálfur við og flytur erindi um störf sín og framtíðarsýn í kennslu og rannsóknum. Í lok athafnarinnar gefst svo tækifæri til þess að spjalla og gleðjast með hinum nýja prófessor.
Tilgangur kynningarfyrirlestranna er að vekja athygli á hinum nýja prófessor, störfum hans og áherslum, ekki síst til þess að auka tengsl og samstarf innan skólans, en einnig til þess að hefja prófessorsstarfið til vegsemdar.
Allir velkomnir!