
Fundur þar sem farið verður yfir praktísk atriði sem gagnast bæði nýjum og gömlum nemendum.
Í lokin verður boðið upp á stutt námskeið í akademískum vinnubrögðum en bæði kynningin og námskeiðið verður haldið í stofu 102 á Háskólatorgi.
Dagskráin:
13:00-13:20 Daði Már Kristófersson forseti Félagsvísindasviðs býður nemendur velkomna.
13:20-13:40 „Hvað er í boði fyrir þig?“ Elísa Jóhannsdóttir markaðs- og vefstjóri fer yfir aðstöðu og þjónustu.
13:50-15:50 „Verkefnavinna og hugbúnaður sem einfaldar vinnuna.“ Rannveig Þórisdóttir aðjunkt verður með stutt námskeið fyrir þá sem eru að hefja nám í háskóla og þá sem eru ef til vill að hefja nám á meistarastigi eftir hlé. Á námskeiðinu verður fjallað almennt um heimildir og heimildaleit, vinnuferlið, afmörkun efnis, uppbyggingu fræðilegra ritsmíða og ábyrga notkun á heimildum. Kynntur verður hugbúnaður sem nemendur geta nýtt sér við undirbúning ritsmíða og utanumhald á heimildum.