Quantcast
Channel: Viðburðir við HÍ - Events at the University of Iceland
Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012

Meistarafyrirlestur:Evaluation of lava flow volumes from Hekla volcano based on new topgraphic data

$
0
0
Hvenær hefst þessi viðburður: 
10. janúar 2014 - 14:00
Staðsetning viðburðar: 
Nánari staðsetning: 
Stofa 132
Háskóli Íslands

Jorge Montalvo, meistaranemi í jarðfræði,  flytur lokafyrirlestur um MS-verkefni sitt í stofu 132 í Öskju, föstudaginn 10. janúar 2014, klukkan 14. Heiti verkefnisins er: Evaluation of lava flow volumes from Hekla volcano based on new topgraphic data.

Í fyrirlestrinum fjallar Jorge  um hraun frá Heklu og ný gögn sem nota má til að meta þykkt þeirra.  Hann kynnir mat á rúmmáli hrauna í gosum 1878 og 1913 og endurmat á rúmmáli hrauna 1980-81.

Leiðbeinandi Jorges er Páll Einarsson.
Prófdómari er Páll Imsland.

Jorge Montalvo lauk BS-prófi í jarðfræði frá Háskóla Íslands 2008 og M.Paed.-prófi frá sama skóla 2010. 

 

Ágrip

Hraun verða til í mörgum eldfjöllum á jörðinni, einkum í gosum þar sem sprengivirkni er lítil.  Það er mjög mikilvægt að gerð séu líkön af eiginleikum hraunflæðis víða um heim og útbreiðslu hrauna, einkum þar sem virk eldfjöll eru í grennd við byggð svæði og ræktarlönd. Hekla er eitt virkasta eldstöðvakerfi Íslands og er vel þekkt fyrir blönduð gos. Gos hafa orðið í kerfinu tuttugu og þrisvar sinnum, eða þar um bil, síðan land byggðist. Hraun hefur runnið í öllum þessum gosum nema einu, svo vitað sé, og jafnvel í þeim öllum. Þótt byggð sé strjál í héruðunum næst Heklu hafa bændur iðulega orðið fyrir búsifjum af gosunum fyrr á öldum.

Í þessari ritgerð eru notuð ný hæðargögn byggð á ratsjármælingum til að meta þykkt hrauna við Heklu með meiri nákvæmni en áður. Þykktin er eitt af þeim atriðum sem mestu máli skipta við endurreikning á rúmmáli hraunanna og við hugsanlegt mat á eldvirknivá á Heklusvæðinu og við önnur eldfjöll af svipaðri gerð. Við höfum reiknað þykkt hraunjaðranna við hraunbrúnir og notuðum við það stafrænt hæðarlíkan með góðri upplausn. Auk þess bjuggum við til kort yfir nýleg Hekluhraun á grundvelli fyrirliggjandi hraunkorta, nýlegra loftmynda, svo og hinna nýju ratsjárgagna.

Við prófuðum aðferðina á hrauninu frá 1980-1981 og út kom flatarmálið 23.04 km2 en það kemur vel heim og saman við eldri athuganir. Við metum rúmmálið 0.07 km3, sem er nokkru minna en áður var metið. Að lokum beittum við þessari aðferð til að reikna út flatarmál og rúmmál hraunanna frá 1878 og 1913. Rúmmál hraunanna er metið 0.03 km3 og 0.02 km3.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012