Hvenær hefst þessi viðburður:
29. nóvember 2016 - 9:00 til 10:30
Staðsetning viðburðar:
Nánari staðsetning:
Hátíðasalur

Dorothy Sue Cobble, prófessor við Rutgers-háskóla, flytur fyrirlestur sem nefnist Nýjar hreyfingar, ný viðmið: Endursköpun verkalýðssögu fyrir framtíðina. Fyrirlesturinn fer fram í Hátíðasal Háskóla Íslands í Aðalbyggingu þriðjudaginn 29. nóvember og hefst kl. 09:00. Hann verður fluttur á ensku.
Ragnheiður Kristjánsdóttir, dósent og forstöðumaður Sagnfræðistofnunar Háskóla Íslands, er fundarstjóri.
Fyrirlesturinn er opinn öllum en hann er hluti af Norrænni ráðstefnu um verkalýðssögu sem fram fer á vegum Sagnfræðistofnunar Háskóla Íslands dagana 28.-30. nóvember. Nánari upplýsingar um ráðstefnuna á nordiclabourhistory.org.