Hvenær hefst þessi viðburður:
21. nóvember 2016 - 12:20 til 13:00
Staðsetning viðburðar:
Nánari staðsetning:
Keldur - bókasafn

Fyrirlesari: Sigurður Skarphéðinsson, yfirlæknir á smitsjúkdómadeild Odense Universitetshospital (OUH) í Danmörku og forstjóri Clinical Center for Emerging and Vector-borne Infections, OUH.
Á seinni árum hefur mikilvægi mítilborinna smitsjúkdóma í Evrópu aukist. Orsaka þessa má leita i breyttu loftslagi, breyttum landbúnaðarháttum og mannlegu atferli. Rannsóknir á mítlum hafa samtímis leitt í ljós að þeir bera mun fleiri sjúkdómsvalda en áður var talið. Fram að þessu hafa mítilbornar sýkingar ekki verið vandamál á Íslandi en með aukinni skógrækt og breyttu loftslagi opnast möguleikar á auknu landnámi mítla. Farið verður yfir nokkra þætti um mítla og mítilbornar sýkingar i norður Evrópu.