Hvenær hefst þessi viðburður:
3. janúar 2017 - 8:00 til 4. janúar 2017 - 18:00
Staðsetning viðburðar:

18. ráðstefna Heilbrigðisvísindasviðs um rannsóknir í líf- og heilbrigðisvísindum fer fram 3. og 4. janúar 2017 Háskólatorgi. Ráðstefnunni er ætlað að kynna og miðla því sem er efst á baugi í líf- og heilbrigðisvísindum innan Háskóla Íslands og utan hverju sinni.
Á dagskrá ráðstefnunnar í janúar n.k. verða málstofur, veggspjaldasýningar og spennandi gestafyrirlesarar. Skipulag ráðstefnunnar verður með svipuðu sniði og áður. Sérstök áhersla verður lögð á að málstofur á ráðstefnunni verði eins þverfræðilegar og hægt er til þess að tengja saman vísindafólk úr ólíkum greinum. Ekkert skráningargjald er á ráðstefnuna en skráning er samt sem áður skilyrði fyrir þátttöku.Samþykkt ágrip verða birt í fylgiriti Læknablaðsins sem dreift verður á ráðstefnunni og á heimasíðu Háskóla Íslands.
Heilbrigðisvísindasvið býður öllum þeim sem stunda rannsóknir í líf- og heilbrigðisvísindum við Háskóla Íslands eða tengdar stofnanir og fyrirtæki til þátttöku í ráðstefnunni.
Skilafrestur ágripa er til 1. október 2016.
Undirbúningur og framkvæmd 18. ráðstefnunnar er í höndum skrifstofu Heilbrigðisvísindasviðs og sérstakrar undirbúningsnefndar.